Myndband af mörkunum úr leik Stjörnunnar og Fjölnis í 3. flokki karla hafa farið víða í dreifingu. Lokatölur urðu 1-7 Fjölni í vil. Mörkin sem Fjölnir skoraði í leiknum vekja mikla athygli því flest af þeim eru skot í autt markið eftir að markvörður Stjörnunnar kom mjög hátt upp á völlinn.
Einhverjir hafa hneykslast mikið á leikstíl Stjörnunnar í leiknum og þjálfarinn, Olgeir Sigurgeirsson, verið harðlega gagnrýndur.
Hilmar Árni Halldórsson er aðstoðarþjálfari KR en þar til í vetur hafði hann lengi verið í Garðabænum, fyrst sem leikmaður Stjörnunnar og svo yngri flokka þjálfari. Hann sagði frá hugleiðingum sínum í opinni Facebook færslu í gær. Hilmar starfaði með Olgeiri á síðasta ári.
Fótbolti.net hafði samband við Pál Árnason, yfirþjálfara Stjörnunnar, en hann sagði að Stjarnan ætlaði ekki að tjá sig um málið. Mörkin má sjá hér að neðan sem og skrif Hilmars Árna.
Einhverjir hafa hneykslast mikið á leikstíl Stjörnunnar í leiknum og þjálfarinn, Olgeir Sigurgeirsson, verið harðlega gagnrýndur.
Hilmar Árni Halldórsson er aðstoðarþjálfari KR en þar til í vetur hafði hann lengi verið í Garðabænum, fyrst sem leikmaður Stjörnunnar og svo yngri flokka þjálfari. Hann sagði frá hugleiðingum sínum í opinni Facebook færslu í gær. Hilmar starfaði með Olgeiri á síðasta ári.
Fótbolti.net hafði samband við Pál Árnason, yfirþjálfara Stjörnunnar, en hann sagði að Stjarnan ætlaði ekki að tjá sig um málið. Mörkin má sjá hér að neðan sem og skrif Hilmars Árna.
3. flokkur Stjörnunnar að vinna með góða taktík pic.twitter.com/H0ilvcI8er
— Benedikt Björgvinsson (@benediktbjo) May 20, 2026
Skrif Hilmars Árna
Má hugsa sjálfstætt?
Í þessari viku fékk ég send myndbönd úr leik hjá 3. flokki karla í Stjörnunni í knattspyrnu úr mörgum mismunandi áttum. Myndböndin sýndu aggressívar staðsetningar markvarðarins hjá Stjörnuliðinu og mörkin sjö sem Fjölnir skoraði á þá. Öll viðbrögð voru nákvæmlega eins; háð og hneykslan. Ég sat með þessum myndböndum og viðbrögðum í nokkurn tíma og reyndi að átta mig á hvar villan væri. Ég speglaði mig í umhverfi mínu og á endanum fann ég mig knúinn til að deila hugsunum mínum, eitthvað sem ég hef ekki gert áður á þessu formi þó ég hiki sjaldnast við það í persónu.
Fyrstu skynsömu viðbrögð við öllu slíku sem við höfum ekki séð oft áður, hvort sem við á um upplegg í knattspyrnu eða afstöðu í stjórnmálum, finnst mér að ætti að vera á þennan hátt: Þetta er öðruvísi, hver ætli sé hugsunin? Nú er ég ekki óháður, ég hlaut þann heiður að þjálfa með þessum manni í fyrra og hugrakkari einstakling er erfitt að finna. Olgeir Sigurgeirsson hefur unnið virkilega öflugt starf með þessum ungu drengjum í Stjörnunni og ögrar þeim daglega sem og rótgrónum viðmiðum okkar um hvernig hlutir ættu að vera. Það er svo auðvitað hægt að taka þá umræðu um hversu langt er hægt að ganga með allar hugmyndir, um hvort drengirnir hafi skoðun á hlutunum og hvort þeim líði vel með þær ákvarðanir sem eru svo teknar því þeir spila svo auðvitað leikinn. Allt þetta skiptir máli og ætti auðvitað að vera samræður milli þjálfara og leikmanna og svo þjálfara og yfirþjálfara, þeirra einstaklinga sem hafa samhengið og skilja hvað liggur að baki.
Þá komum við að raunverulegum viðbrögðum samfélagsins. Allir hafa skoðun á fótbolta virðist vera og allir í kringum mig hafa haft skoðun á þessu. Jafnvel þó fólk hafi engar forsendur til að skilja samhengið eru allir tilbúnir að hrauna yfir þjálfarann, félagið, stefnuna og allt sem þetta táknar. Líkt og góður vinur minn sagði: „Ég er búinn að sjá myndbandið en það er auðvitað bara eins og að lesa fyrirsögnina, ég er skilinn eftir með fullt af spurningum en ég hef engin svör.“ Ég heyri af því að þjálfarasamfélagið keppist um það að níða skóinn af þessum einstakling sem, Guð forði okkur frá því, þorði að gera eitthvað annað en að sparka langt á fljótasta og sterkasta leikmanninn sinn og fór óhefðbundnar leiðir að ögra leikmönnum sínum í þroskaferli þeirra. Þessir sömu þjálfarar ættu að geta auðveldlega sett sig í spor þjálfarans en er í raun svigrúm fyrir það að hugsa öðruvísi? Ef allir hlæja að þessu hlýt ég að þurfa að gera það líka, ég má ekki afhjúpa mig og synda gegn straumnum. Í samfélagi þar sem enginn stendur fyrir neitt eltumst við bara við útkomuna og útkoman var bara svo hræðileg, 7 mörk í leik hjá börnum. Vonandi þurfa þessir drengir aldrei að takast á við neitt jafn erfitt í þessu lífi.
Síðan heyri ég af því að hlaðvarp sem fjallar um fullorðinsfótbolta hafi tekið þennan yngri flokka leik fyrir og hluti af því sem var sagt þar var m.a. að það ætti að útrýma svona mönnum úr fótbolta, að þetta væri viðbjóður og svo framvegis. Nú spyr ég; sá ungi þjálfari í Gróttu eða Breiðablik sem ætlar sér núna að prófa öðruvísi hluti og ögra norminu, er verið að ýta honum í þá átt eða dæma hann til að verða eins og allir hinir sem munu fórna hverju sem er til þess eins að vinna leik hjá börnum sem engu máli skiptir í stóra samhenginu? Síðan eru það auðvitað foreldrarnir sem gæti verið efni í aðra umræðu en ég spyr aftur; Hvar liggur villan, hjá þessum þjálfara sem ákvað að prófa öðruvísi upplegg og tapaði leik eða hjá foreldrum sem hóta að taka barnið sitt út úr félaginu vegna þessara ákvarðana?
Hver er ábyrgðin hjá fjölmiðlum og uppalendum, erum við að búa til einstaklinga sem mega hugsa sjálfstætt?



