Fotbolti.net
22.07.06 - 15:22
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Del Horno til Valencia (Staðfest)

Del Horno náði aldrei að sanna sig fyrir Mourinho

Del Horno náði aldrei að sanna sig fyrir Mourinho

Canon

Mynd: Getty Images

Valencia hafa gengið frá kaupunum á spænska landsliðsmanninum Asier Del Horno frá Chelsea og skrifar hann undir hvorki meira né minna en sex ára samning við félagið.
Talið era ð kaupverðið sé um 4,8 milljónir punda en Chelsea borgaði átta milljónir punda fyrir þennan 25 ára gamla leikmann fyrir aðeins einu ári síðan.

Wayne Bridge er nú eini eiginlegi vinstri bakvörðurinn í Chelsea, þó að William Gallas geti einnig spilað í þeirri stöðu, en búist er við því að Jose Mourinho muni kaupa Ashley Cole til félagsins áður en nýtt tímabil hefst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.