Fotbolti.net
22.07.17 - 19:37
Elvar Geir Magnússon

Gunnhildur Yrsa: Stuðningsmenn Íslands búnir að vinna mótið

Auglýsing
Gunnhildur Yrsa.

Gunnhildur Yrsa.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir ræddi við Fótbolta.net eftir tapið gegn Sviss.
„Það er mjög erfitt að tapa þessum leik og þurfa að treysta á önnur lið. Við erum svekktir en höfum ekki tíma til að svekkja okkur lengi. Við ætlum að koma brjálaðar í næsta leik,\" segir Gunnhildur Yrsa.

„Það er skrítin tilfinning eftir þennan leik og erfitt að lýsa honum. Við komum 100% með viljuna og baráttuna en þetta féll ekki með okkur.\"

„Það er best að ég segi sem minnst,\" segir Gunnhildur þegar hún er spurð út í dómarann.

Þegar Gunnhildur var spurð út í stuðninginn í stúkunni sagði hún að engir aðrir stuðningsmenn ættu roð í þá íslensku.

„Frábært hversu margir mættu. Þessi stuðningur hefur verið magnaður og þessir stuðningsmenn hafa svo sannarlega unnið þetta mót.\"

Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.