22.08.05 - 11:01
Hafliði Breiðfjörð
Brian Priske til Portsmouth (Staðfest)




Danski varnarmaðurinn Brian Priske er genginn í raðir Portsmouth en hann er keyptur þangað frá belgíska félaginu Genk. Kaupverð hefur ekki verið gefið upp ennþá en Priske sem er 28 ára gamall skrifaði undir þriggja ára samning og verður líklega í leikmannahópnum sem mætir Aston Villa á morgun.
Peter Storrie framkvæmdastjóri Portsmouth sagði: ,,Brian er reyndur varnarmaður, sem spilar í vinstri bakverði í landsliði sínu og miðvarðarstöðunni hjá félagsliði sínu. Ég held að hann hafi sannað hæfileika sína í sigurleiknum á Englandi."
