Fotbolti.net
22.08.05 - 11:05
Hafliði Breiðfjörð

Darren Anderton til Wolves (Staðfest)

Darren Anderton til Wolves (Staðfest)
Canon
Darren Anderton gekk í morgun í raðir enska 1. deildarfélagsins Wolves frá Birmingham en hann fékk að yfirgefa síðarnefnda liðið á frjálsri sölu. Anderton sem er 33 ára gamall skrifaði undir eins árs samning við Wolves en þar hittir hann fyrir Glenn Hoddle sem áður hefur stjórnað honum hjá Tottenham og enska landsliðinu.
,,Ég er hæstánægður með að fá Darren um borð. Hann er frábær fótboltamaður og hann getur gert virkilega vel fyrir Wolves," sagði Hoddle.

,,Ég er spenntur fyrir því að hann spili fyrir okkur, hann hefur frábæra yfirsýn. Ég þekki hann inn og út og hef trú á að hann verði til mikilla bóta fyrir leikmannahópinn."

Anderton lék aðeins níu leiki í byrjunarliði hjá Birmingham á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.