22.08.05 - 12:29
Hafliði Breiðfjörð
Jiri Jarosik til til Birmingham (Staðfest)

Jiri Jarosik miðvallarleikmaður Chelsea gekk í dag í raðir Birmingham á láni út leiktíðina. Í kjölfarið eiga Birmingham möguleika á að kaupa hann til sín. Jarosik er 27 ára gamall tékkneskur leikmaður sem gekk í raðir Chelsea frá CSKA Moskva á 3 milljónir punda í janúar en hann lék aðeins 20 leiki á síðustu leiktíð.
,,Hann er kraftmikill miðvallarleikmaður sem er sterkur í loftinu. Það er eiginleiki sem höfðar til okkar," sagði Steve Bruce stjóri Birmingham í dag.
Möguleikar Jarosik á að spila með Chelsea urðu að engu eftir að Chelsea keypti Michael Essien frá Lyon í Frakklandi. Jarosik hefur fengið treyjunúmerið 14 hjá Birmingham en Darren Anderton sem í morgun gekk í raðir Úlfanna hafði það númer áður.