Fotbolti.net
22.08.05 - 15:13
Magnús Már Einarsson

Unsworth til Sheffield United (Staðfest)

Unsworth til Sheffield United (Staðfest)
Canon
Varnarmaðurinn David Unsworth hefur gengið til liðs við Sheffield United og hefur hann gert þriggja ára samning við liðið. Unsworth sem er 31 árs kemur frá Portsmouth en Sheffield mun aðeins borga fyrir hann nái liðið að komast upp í úrvalsdeild.
Unsworth sem var mikið í láni hjá Ipswich Town á síðustu leiktíð sagði við BBC: ,,Ég fer úr úrvalsdeildinni en aðeins í eitt tímabil. Þetta félag getur komist upp með hópinn sem er hér, ég er vongóður um það. Ég hef verið hrifin af því sem ég hef séð hér."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.