Fotbolti.net
22.08.06 - 17:23
Þórður Már Sigfússon
Ítalska deildin

Boumsong til Juventus (Staðfest)

Boumsong olli vonbrigðum hjá Newcastle

Boumsong olli vonbrigðum hjá Newcastle

Canon

Mynd: Getty Images

Franski landsliðsmaðurinn Jean-Alain Boumsong er genginn til liðs við Juventus frá Newcastle, en þetta kom fram á heimasíðu enska félagsins fyrir stundu.
Boumsong, sem er 26 ára gamall miðvörður, samdi við Juventus til fjögurra ára og er kaupverðið um 3,3 milljónir punda auk bónusgreiðslna sem ítalska félagið þarf að inna af hendi ef svo ber undir.

Boumsong gekk til liðs við Newcastle frá skosku risunum í Glasgow Rangers í janúar 2005, og spilaði 59 leiki fyrir félagið. Hann kostaði Newcastle 8 milljónir punda en þáverandi knattspyrnustjóri liðsins, Graeme Souness, lagði hart að stjórnarmönnum félagsins að kaupa leikmanninn.

Það er ljóst að Newcastle hefur tapað miklum peningum á þessum viðskiptum en Boumsong olli gríðarlegum vonbrigðum hjá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.