22.08.06 - 22:46
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Diarra til Real Madrid (Staðfest)

Jááá, ég er að fara til Real

Mynd: Getty Images

Jááá, ég er að fara til Real

Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur gengið frá kaupunum á miðjumanninum Mahamadou Diarra frá frönsku meisturunum í Lyon og skrifaði hann undir fimm ára samning við spænska stórveldið.
Real hafa samþykkt að borga Lyon 17,6 milljónir punda fyrir kappann en það er þó nokkuð minna heldur en Lyon sagðist vilja fá fyrir hann upphaflega.
,,Ég er mjög spenntur. Það er draumur fyrir mig að koma og spila fyrir Real. Ég er þakklátur öllum þeim sem lögðu svo mikið á sig í samningarviðræðunum og núna er það mitt verk að standa mig á vellinum,” sagði Diarra.
Alou Diarra, fyrrum leikmaður Liverpool, mun því væntanlega ganga til liðs við Lyon á næstu dögum til að fylla skarð nafna síns.