22.08.07 - 19:16
Sindri Þór Þorgeirsson
Sylvain Wiltord til Rennes (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Franski sóknarmaðurinn Sylvain Wiltord er á leið frá Lyon til franska liðsins Rennes eftir að hann samþykkti tilboð þeirra og skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í dag.
Wiltord er ekki ókunnugur hjá Rennes en hann yfirgaf félagið árið 1997 og fór þaðan til franska liðsins Bordeaux. Hann fór síðan til Arsenal eins og allir vita og stóð sig með prýði þar og var mikilvægur hluti af sterku liði þeirra þar sem hann vann ensku úrvalsdeildina tvisvar auk þess sem hann vann enska bikarinn einnig tvisvar.
Wiltord hefur spilað 92 landsleiki fyrir Frakkland og skorað í þeim 26 mörk. Hann var hluti af liðinu sem varð Evrópumeistari árið 2000 og einnig var hann hluti liðsins sem komst í úrslit HM í fyrra.
Wiltord hefur spilað 92 landsleiki fyrir Frakkland og skorað í þeim 26 mörk. Hann var hluti af liðinu sem varð Evrópumeistari árið 2000 og einnig var hann hluti liðsins sem komst í úrslit HM í fyrra.
Heimild: Reuters
