Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 22. september 2020 20:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Deildabikarinn: WBA úr leik - West Ham skoraði fimm
Tvö frá Yarmolenko og Haller.
Tvö frá Yarmolenko og Haller.
Mynd: Getty Images
Þremur af fjórum leikjum kvöldsins í enska deildabikarnum er lokið. Upphaflega áttu fimm leikir að fara fram en viðureign Leyton Orient og Tottenham var aflýst vegna Covid-smita.

West Ham, sem var án tveggja leikmanna sem áttu að byrja leikinn og stjóra síns vegna Covid-smita, vann Hull City sannfærandi 5-1 á heimavelli. Andriy Yarmolenko og Sebastian Haller skoruðu báðir tvö mörk fyrir Hamranna.

Þá vann Newport óvæntan sigur á Watford og úrvalsdeildarfélagið West Brom er úr leik eftir tap gegn Brentford í vítaspyrnukeppni. Staðan var 2-2 eftir venjulegan leiktíma en Brentford nýtti allar sínar spyrnur í keppninni á meðan Grady Diangana brást bogalistin hjá WBA.

Nú er í gangi viðureign Manchester United og Luton og lýkur þeim leik eftir um hálftíma.

Newport 3 - 1 Watford
1-0 Tristan Abrahams ('18 , víti)
2-0 Joss Labadie ('28 )
2-1 Adalberto Penaranda ('54 , víti)
3-1 Padraig Amond ('65 )
Rautt spjald: Stipe Perica, Watford ('89)

West Brom 6 - 7 Brentford
1-0 Hal Robson-Kanu ('56 , víti)
1-1 Emiliano Marcondes ('58 )
2-1 Kyle Edwards ('66 , víti)
2-2 Marcus Forss ('73 , víti)

West Ham 5 - 1 Hull City
1-0 Robert Snodgrass ('18 )
2-0 Sebastian Haller ('45 )
3-0 Andriy Yarmolenko ('56 , víti)
3-1 ('70 )
4-1 Sebastian Haller ('90 )
5-1 Andriy Yarmolenko ('90 )
Athugasemdir
banner
banner