Aganefnd KSÍ kom saman í dag eins og venjan er á þriðjudögum.
Lasse Petry, miðjumaður Vals, var dæmdur í bann vegna uppsafnaðra áminninga. Hann verður með toppliðinu gegn FH á fimmtudaginn en tekur bannið út í leik gegn Breiðabliki í Pepsi Max-deildinni á sunnudaginn.
Elfar Freyr Helgason, varnarmaður Breiðabliks, tekur út bann í umræddum leik á sunnudag.
Alex Þór Hauksson, fyrirliði Stjörnunnar, er einnig á leið í bann vegna uppsafnaðra áminninga. Hann má spila gegn Breiðabliki á fimmtudag en verður í banni gegn HK á sunnudag.
Mikkel Qvist, varnarmaður KA, fékk tveggja leikja bann vegna brottvísunar sem hann fékk í jafnteflinu gegn Fjölni á laugardag. Hann missir af leikjum gegn HK og Gróttu.
Ívar Örn Jónsson verður í banni hjá HK gegn KA á fimmtudag og þá verða HK-ingar án Valgeirs Valgeirssonar í leik gegn Stjörnunni á sunnudag. Valgeir fer í bann vegna uppsafnaðra áminninga.
Þá eru leikmenn ÍA; Hallur Flosason og Sindri Snær Magnússon, á leið í bann vegna uppsafnaðra áminninga. Þeir geta spilað á fimmtudag gegn Fjölni en verða í banni gegn Víkingi á sunnudaginn.

Fjórir Framarar í banni á Akureyri
Í Lengjudeildinni verður Fram, sem er í baráttu um að komast upp, með fjóra leikmenn í banni þegar leikið verður gegn Þór Akureyri á laugardaginn. Það eru Albert Hafsteinsson, Aron Þórður Albertsson, Magnús Þórðarson og Unnar Steinn Ingvarsson sem verða í banni.
Keflavík, sem er á toppi deildarinnar, heimsækir Vestra á laugardag. Anton Freyr Hauks Guðlaugsson og Rúnar Þór Sigurgeirsson verða í banni hjá Keflvíkingum.
Leiknir Reykjavík er í öðru sæti og mætir Aftureldingu á laugardaginn. Daði Bærings Halldórsson, miðjumaður Leiknis, verður í banni í þeim leik.
Guðmundur Magnússon, sóknarmaður Grindvíkinga, verður í banni gegn Magna á laugardaginn.Þá fékk Gunnar Þorsteinsson, fyrirliði Grindvíkinga, tveggja leikja bann og missir bæði af leiknum gegn Magna og leik gegn Víkingi Ólafsvík næsta þriðjudag.
ÍBV heimsækir Þrótt á laugardag en verður án markvarðarins Halldórs Páls Geirssonar og miðjumannsins Telmo Castanheira sem verða báðir í banni.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |

Athugasemdir