22.09.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Óska Glazer fjölskyldunni til hamingju með að finna verri aðila"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sir Jim Ratcliffe, einn af eigendum Manchester United, er langt því frá að vera vinsælasti einstaklingurinn á Bretlandi þessa dagana.
Stuðningsmannaklúbbur múslima hjá Manchester United krefst þess eigendur félagsins selji það. Þeir eru afar ósáttir með nýjustu ummæli Sir Jim Ratcliffe í viðtali við BBC.

TENGT EFNI
„Glazers og Sir Jim Ratcliffe verða að fara"
Glazer fjölskyldan seldi Ratcliffe hlut í félaginu árið 2024 en það eru enn mikil vandamál bæði innan og utan vallar hjá félaginu. Gary Lineker hraunaði yfir Ratcliffe í hlaðvarpsþættinum The Rest is Football.
„Ég verð að óska Glazer fjölskyldunni til hamingju með að finna ennþá verri aðila sem þau geta kennt um og fengið inn til að fá allan skítinn yfir sig: Jim Ratcliffe," sagði Lineker.
„Ég held að hann sé ekkert sérstaklega þægileg manneskja og það er svolítið ömurlegt hvernig félagið er rekið eins og er. Svo, vel gert hjá Glazer-hjónunum í þessu máli, að beina öllu frá þeim."