„Mér líður mjög vel og geðveikt að skora og að vinna gott lið á erfiðum útivelli, þetta var bara geðveikt" sagði hinn 16 ára gamli Mattías Kjeld, leikmaður Gróttu sem skoraði þriðja mark Gróttu gegn Þrótti á heimavelli Þróttar.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 3 Grótta
Ertu ánægður með frammistöðuna í dag?
„Já, fengum leiðinleg mörk á okkur. Mér fannst við vera betri í fyrri og þeir skoruðu skíta mörk. Geðveikt að geta komið til baka og klárað þetta í lokin."
Mattías, sem er með þrjú mörk í tveimur síðustu leikjum, skipti yfir til Gróttu frá Val í vetur.
„Ég sá ekki fram á það að spila í Val og minni að þeir hafi sagt það við mig að þeir vildu ekki lofa mínútum. Hérna var tækifæri á að fá að spila fótbolta, eins og ég er að gera núna, byrja alla leiki og að standa mig. Valur gat ekki lofað mér mínútum og Grótta gat leyft mér að spila."
„Ég var ekki samningsbundinn við Val, þannig að ég fór á fund með Gróttu um að fara á lán, mig langaði að fara á lán. En Grótta sagði við mig að þeir vilji ekki fá lánsleikmenn og mér leist vel á Gróttu og Rúnar og alla. Ég stökk á þetta og skrifaði undir tveggja ára samning."
Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan
























