22.10.07 - 17:50
Hafliði Breiðfjörð
Höskuldur Eiríksson í FH (Staðfest)

Höskuldur í baráttu við Tryggva Guðmundsson í lokaumferð Landsankadeildarinnar í sumar. Þeir verða nú liðsfélagar.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

FH fékk í dag góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í Landsbankadeildinni næsta sumar þegar Höskuldur Eiríksson fyrirliði Víkinga samþykkti tveggja ára samning við félagið. Lúðvík Arnarsson varaformaður knattspyrnudeildar FH staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag.
Eins og við greindum frá fyrir helgi hafði FH komist að samkomulagi við Víkinga um kaupverð á Höskuldi sem var samningsbundinn félaginu út næsta ár.
Höskuldur tók við fyrirliðabandinu hjá Víkingum árið 2004 og varð þá yngsti fyrirliðinn í Landsbankadeildinni. Hann hélt áfram með liðinu eftir að þeir féllu í 1. deildina þá um haustið og var einn af máttarstólpum liðsins sem komst aftur upp um deild.
Hann var svo einn besti leikmaður liðsins í Landsbankadeildinnni sumarið 2006 þegar Víkingur hélt sér uppi í fyrsta skipti í 13 ár.
Hann var svo lánaður til Viking í Noregi í vor þar sem meiðsli hindruðu að hann léki með liðinu og því sneri hann aftur heim til Víkinga og tók strax við fyrirliðabandinu. Hann lék 7 leiki með Víkingum í Landsbankadeildinni í sumar.
Höskuldur sem er 26 ára gamall er uppalinn hjá KR en hefur einnig leikið með Fjölni og ÍR´. Hann á að baki 46 leiki í efstu deild með KR og Víkingum. Hann er ekki ókunnugur FH-ingum því hann skoraði bæði mörkin fyrir Víkinga er þeir slógu FH út úr VISA-bikarnum sumarið 2006.