22.10.07 - 19:34
Hafliði Breiðfjörð
Jónas Grani Garðarsson í FH (Staðfest)

Jónas Grani reynir að ná boltanum af Sverri Garðarssyni í leik FH og Fram í sumar.

Mynd: FH.is

Jónas Grani Garðarsson markakóngur Landsbankadeildarinnar 2007 hefur tekið ákvörðun um að yfirgefa Framara og ganga til liðs við sína gömlu félaga í FH. Þetta staðfesti Lúðvík Arnarsson varaformaður knattspyrnudeildar FH í samtali við Fótbolta.net í dag.
Jónas Grani er samningsbundinn Fram út þetta ár og mátti því hefja viðræður við önnur félög í síðustu viku. Hann tók svo ákvörðun í dag um að ganga til liðs við FH og gerir þar eins ár samning, út næstu leiktíð.
Jónas Grani sem er 34 ára gamall átti frábært tímabil með Fram í sumar og skoraði 13 mörk í 18 leikjum fyrir liðið í Landsbankadeildinni. Að lokum fór svo að hann varð markahæsti leikmaður deildarinnar, skoraði einu marki meira en Helgi Sigurðsson hjá Val.
Jónas Grani lék í átta ár með FH á árunum 1998-2006 en á þeim tíma lék hann 61 leik með FH í efstu deild og skoraði í þeim 23 mörk. sumarið 2005 var hann hinsvegar lítið í myndinni hjá Ólafi Jóhanessyni þáverandi þjálfara liðsins og lék aðeins tíu leiki og skoraði í þeim fimm mörk.
Hann fór því frá félaginu eftir það tímabil eða um vorið 2006. Þar sem FH vildi ekki selja hann innan Landsbankadeildarinnar ákvað hann að fara til Fram sem þá var í 1. deildinni. Hann var í tvö ár hjá Fram og á þeim tíma lék hann 40 leiki og skoraði 22 mörk.
Athygli vakti í sumar þegar Jónas Grani skoraði tvö marka Fram í 3-3 jafntefli gegn FH að hann fagnaði ekki mörkum sínum.
Hann er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir FH í dag því varnarmaðurinn Höskuldur Eiríksson ákvað einnig að ganga í raðir félagsins frá Víkingum.