Fotbolti.net
22.10.07 - 17:08
Hafliði Breiðfjörð

Guðlaugur Baldursson tekur við ÍR (Staðfest)

Guðlaugur við undirskriftina í dag.

Guðlaugur við undirskriftina í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðlaugur Baldursson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við 2. deildar lið ÍR en hann kemur til félagsins frá FH þar sem hann hefur verið yfirþjálfari yngri flokka. Þetta er í annað sinn sem Guðlaugur tekur við þjálfun hjá meistaraflokks liði því hann tók við liði ÍBV og stýrði þeim í Landsbankadeildinni sumarið 2005 og fram í ágúst 2006 þegar hann hætti með liðið sem féll það ár.
Við undirskriftina í dag sagði Guðlaugur að það sé stefna hjá félaginu að fara upp um deild strax á næsta ári og ekkert annað kæmi til greina. Hann sagði að æfingar hæfust hjá liðinu 1. nóvember og eina markmiðið væri að komast upp um deildina.

Hann sagði að nú væri stefnan sett á að styrkja liðið innanfrá og ef með þyrfti að styrkja liðið utan frá þá myndi hann skoða það með stjórnarmönnum félagsins. Nánar er rætt við Guðlaug í viðtali hér á Fótbolta.net á eftir.

Áður en Guðlaugur tók við ÍBV hafði hann verið yfirþjálfari yngri flokka hjá FH og stýrði meðal annars 2. flokki félagsins sem vann alla sína deildarleiki 2003. Hann var einnig aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki FH sumarið 2002 er Sigurður Jónsson þjálfaði liðið.

Guðlaugur tekur við starfinu af Sigurði Þóri Þorsteinssyni sem stýrði liðinu einn í síðustu umferðunum eftir að Ásgeir Elíasson sem hafði þjálfað liðið með honum lést 9. september.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.