Fotbolti.net
22.10.26 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

Krissi Konn hjá Fram næstu árin (Staðfest)

Krissi Konn hjá Fram næstu árin (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristófer Konráðsson er búinn að framlengja samning sinn við Fram út tímabilið 2029.
Kristófer Konráðs áfram hjá Fram (Staðfest)
TENGT EFNI

Kristófer Konráðs áfram hjá Fram (Staðfest)

Hann er skemmtilegur örfættur leikmaður sem getur spilað í ýmsum hlutverkum vinstra megin á vellinum, hvort sem það er aftarlega eða framarlega. Hann er fæddur 1998 og skoraði 5 mörk í 14 leikjum í Bestu deildinni í ár.

Krissi Konn er uppalinn hjá Stjörnunni og lék 22 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

„Það er mikið gleðiefni að hafa framlengt við Kristófer sem hefur vaxið gríðarlega á sínum tíma í félaginu. Kristófer hefur spilað 35 leiki fyrir félagið á seinustu 2 árum og komið sterkur inn á þessu tímabili," segir meðal annars í tilkynningu frá Fram, sem endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar.

„Félagið bindur miklar vonir við Kristófer og verður spennandi að fylgjast með honum á vellinum næstu árin að halda áfram þeirri vegferð sem liðið er á."


Krissi Konn hjá Fram næstu árin (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.