22.11.07 - 15:34
Magnús Már Einarsson
Slobodan Milisic tekur við BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson

Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson
Slobodan Milisic hefur verið ráðinn þjálfari BÍ/Bolungarvíkur sem leikur í þriðju deild en hann hefur gert eins árs samning við félagið og mun hefja störf 3.desember.
Milisic tekur við starfinu af Jónasi Sigursteinssyni sem tekur sér frí frá þjálfun.
Slobodan sem er 41 árs tók við þjálfun meistaraflokks KA haustið 2005 og í fyrra endaði liðið í sjötta sæti undir hans stjórn en í vor var honum sagt upp störfum.
Á árum áður lék Slobodan með Leiftur um nokkurn tíma, með ÍA í eitt ár og hann kláraði feril sinn sem leikmaður hjá KA en auk þess að hafa þjálfað meistaraflokk félagsins þá hefur hann þjálfað yngri flokka þar.
BÍ/Bolungarvík var nálægt því að komast upp í aðra deild í sumar en liðið tapaði 4-2 samanlagt fyrir Tindastól í úrslitaleikjum um það að komast upp.