Fotbolti.net
22.11.07 - 16:36
Hafliði Breiðfjörð

Albert Sævarsson til ÍBV (Staðfest)

Hrafn Davíðsson fer frá ÍBV

Albert  Sævarsson með viðurkenningu sína fyrir að vera í liði ársins 2006.

Albert Sævarsson með viðurkenningu sína fyrir að vera í liði ársins 2006.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Markvörðurinn Albert Sævarsson er genginn í raðir ÍBV og hefur gert samning við þá. Albert kemur úr Njarðvík sem eins og ÍBV leikur í 1. deildinni. Frá þessu var greint á vefsíðu ÍBV í dag.
Albert er 34 ára gamall markvörður sem spilaði alla leiki Njarðvíkur í 2. deildinni í sumar og skoraði í þeim tvö mörk en þau komu bæði úr vítaspyrnum í leik liðsinns gegn Fjölni í 7. umferð 1. deildarinnar og tryggðu Njarðvíkingum 2-1 sigur í leiknum.

Albert á að baki 149 leiki í efstu deild hér á landi en þá leiki lék hann alla með Grindavík þar sem hann hefur verði lengst af á ferli sínum.

Hann hefur einnig leikið með B68 í Færeyjum við góðan orðstýr en kom til Njarðvíkur í 2. deildina fyrir tímabilið 2006 og hefur leikið 40 deildarleiki og 4 bikarleiki með liðinu síðan þá og hefur skorað í þeim fjögur mörk.

Hann var í liði ársins sem fyrirliðar og þjálfarar í 2. deildinni völdu fyrir Fótbolta.net sumarið 2006.

Albert er væntanlegur til landsins fljótlega eftir áramót og mun þá hefja æfingar með sínum nýju félögum í ÍBV.

Hrafn Davíðsson hefur varið mark ÍBV undanfarin ár en hefur ekki verið að klára mótin vegna náms í Bandaríkjunum. Hann mun nú yfirgefa félagið og á vefsíðu ÍBV var honum í dag þökkuð góð ár með félaginu og honum óskað velgengni í framtíðinni.

Heimild: Vefsíða ÍBV

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.