Fotbolti.net
22.11.07 - 22:59
Hafliði Breiðfjörð

Runólfur Sigmundsson í Víking (Staðfest)

Runólfur eftir undirskriftina í dag.

Runólfur eftir undirskriftina í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Runólfur Sigmundsson gekk í kvöld í raðir 1. deildarliðs Víkinga og gerði tveggja ára samning við félagið. Runólfur sem er 18 ára gamall var fyrirliði 2. flokks Fylkis undanfarin tvö ár eða allt frá því hann gekk upp í 2. flokk.
Hann er uppalinn hjá Fylki og með 2. flokki félagsins varð hann Íslandsmeistari í sumar.

Hann hefur leikið með U17, U18 og U19 ára landsliðum Íslands og getur spilað allar stöður í vörninni en lék sem miðvörður hjá Fylki í sumar.

Hann hefur æft með Víkingum að undanförnu og í kjölfarið ákvað félagið að bjóða honum samning.

,,Þetta er mjög flott hérna, strákarnir eru fínir og aðstæður ágætar. Mér líst vel á Jesper líka, hann er fantagóður þjálfari. Það eru spennandi tímar framundan hérna" sagði Runólfur í samtali við Fótbolta.net í kvöld en nánar verður rætt við hann í viðtali hér á Fótbolta.net á morgun.

Daninn Jesper Tollefsen er þjálfari Víkinga og hann hafði séð til Runólfs áður og líkar vel við hann.

,,Ég hef séð hann með unglingalandsliðum Íslands og hef lika séð hann með Fylki í Danmörku í fyrra. Mér líkar vel við viðhorfið hjá honum og það er það sem ég leita mest eftir hjá leikmönnum."

,,Hann er líka hraður leikmaður og það getur skipt sköpum í fótbolta,"
sagði Jesper Tollefsen þjálfari Víkinga en nánar er rætt við hann hér á Fótbolta.net á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.