Fotbolti.net
22.11.20 - 22:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Besta frammistaða Liverpool á tímabilinu

„Besta frammistaða Liverpool á tímabilinu
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool vann sannfærandi 3-0 sigur gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Liverpool spilaði mjög vel og tókst að knýja fram sigur gegn mjög sterku liði, þrátt fyrir meiðsli Jordan Henderson, Mohamed Salah, Joe Gomez, Virgil van Dijk, Alex Oxlade-Chamberlain, Rhys Williams, Thiago Alcantara og Trent Alexander-Arnold.
Mark Lawrenson, sérfræðingur BBC og fyrrum leikmaður Liverpool, er á því að Liverpool hafi sýnt sína bestu frammistöðu á tímabilinu í leiknum í kvöld.

„Miðað við hverja þeir voru að spila, þá myndi ég segja að þetta hafi verið besta frammistaða tímabilsins hjá Liverpool," sagði Lawrenson.

Liverpool fór upp að hlið Tottenham á toppi deildarinnar með sigrinum. Leicester hefði getað farið upp fyrir Spurs með sigri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.