Fotbolti.net
11.09.26 - 20:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Vill að JJ Gabriel verði í hóp hjá Man Utd

Vill að JJ Gabriel verði í hóp hjá Man Utd
Canon

Mynd: Instagram/jjnr10

Hinn fimmtán ára gamli JJ Gabriel, leikmaður Man Utd, hefur vakið athygli. Nathan Salt hjá Daily Mail segir að hann eigi að vera í leikmannahópi United gegn Brighton í deildabikarnum á miðvikudaginn.
Gabriel gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í 5-0 sigri Man Utd á Sabah í Meistaradeild unglingaliða í gær. Þetta var fyrsti leikurinn hans í þeirri keppni. Hann er yngsti markaskorari Man Utd í keppninni.

Hann skoraði 26 mörk í 29 leikjum fyrir U18 lið Man Utd á síðasta tímabili.

Þá hefur hann komð að fjórum mörkum í tveimur leikjum fyrir varalið félagsins á þessu tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.