Fotbolti.net
11.09.26 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Ef þeir mæta ekki til leiks í kvöld þá eiga þeir ekki að vera í fótbolta"

„Ef þeir mæta ekki til leiks í kvöld þá eiga þeir ekki að vera í fótbolta"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mjólkurbikarinn
Breiðablik og Afturelding eigast við í úrslitum Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli í kvöld.

Breiðablik hefur verið í miklu brasi í deildinni en liðið situr í 4. sæti 13 stigum frá toppnum. Liðð hefur aðeins nælt í eitt stig úr síðustu sex leikjum.
Bikarúrslitaleiknum seinkað um tíu mínútur
TENGT EFNI

Bikarúrslitaleiknum seinkað um tíu mínútur

Lestu um leikinn: Afturelding 1 - 2 Breiðablik
Albert Brynjar Ingason og Bjarni Guðjónsson, sérfræðingar á RÚV, fóru yfir stöðuna á Blikaliðinu fyrir leikinn.

„Það setur aukna pressu á liðið í kvöld. Þetta eru átta sigrar í deildinni og eitt stig í síðustu sex. Þetta var góð frammistaða hjá Blikaliðinu þegar þeir fengu stigið (gegn KR). Það er búið að vera roslega erfitt að rýna í Breiðablik í sumar. Þeir taka leikinn á móti Víking í bikarnum og báðir leikirnir á móti KR. Það er eins og þegar þeir nenna mæta til leiks eru þeir mjög flottir," sagði Albert.

„Þeir hafa fengið á sig 15 mörk, átta í síðustu sex og sjö af þeim í fyrri hálfleik. Þeir hafa ekki mætt til leiks í deildinni. Ef þeir mæta ekki til leiks í kvöld þá eiga þeir ekki að vera í fótbolta. Ég á ekki von á neinu en að þeir mæti gíraðir til leiks í kvöld."

„Það er eitt að mæta gíraður og annað að mæta í fótboltatakt. Þeir hafa það ekki, þeir hafa bara 2-3 leiki sem þeir hafa spilað sæmilega. Fótboltatakturinn er ekki góður. Það getur vel verið að þeir mæti gíraðir en svo þurfa þeir að finna þennan takt til að spila sinn leik. Þá kemur að hinni spurningunni, hver er þeirra leikur? Ég er ekkert viss um að þeir viti það," sagði Bjarni.
„Ef þeir mæta ekki til leiks í kvöld þá eiga þeir ekki að vera í fótbolta"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.