11.09.26 - 19:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Viktor Bjarki innsiglaði sigurinn gegn Guðlaugi Victori

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Viktor Bjarki Daðason var á skotsóknum þegar FC Kaupmannahöfn vann 2-0 sigur á Horsens í dönsku deildinni í kvöld. Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Horsens.
Viktor Bjarki er að snúa aftur eftir meiðsli en þetta var þriðji byrjunarliðsleikurinn hans í röð. Hann innsiglaði sigurinn með marki snemma í seinni hálfleik.

Hann spilaði 73 mínútur en Gunnar Orri Olsen og Rúnar Alex Rúnarsson voru á bekknum. FCK er á toppnum með 21 stig eftir átta umferðir. Horsens er í 7. sæti með 10 stig.
Ólafur Dan Hjaltason kom inn á sem varamaður en Ingimar Arnar Kristjánsson sat á bekknum þegar Aarhus Fremad gerði markalaust jafntefli gegn Vendsyssel í næst efstu deild í Danmörku. Fremad er í 3. sæti með 13 stig eftir átta umferðir.
Hellerup, lærisveinar Antons Inga Leifssonar, töpuðu 2-1 gegn F. Amager í C-deildinni. Hellerup er með sjö stig eftir sjö umferðir.
Stefán Teitur Þórðarson spilaði 71 mínútu þegar Hannover tapaði 2-1 gegn Nurnberg í næst efstu deild í Þýskalandi. Hannover er með fjögur stig eftir fimm umferðir.
Davíð Kristján Ólafsson spilaði allan leikinn þegar Polonia Warszawa gerði 2-2 jafntefli gegn Polonia Bytom í pólsku deildinni. Liðið er í 6. sæti með 11 stig eftir átta umferðir.