22.12.06 - 19:51
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Man Utd lánar Phil Bardsley til Sunderland (Staðfest)

Bardsley hefur spilað 17 leiki fyrir United

Mynd: Getty Images

Bardsley hefur spilað 17 leiki fyrir United

Mynd: Getty Images
Sunderland hafa komist að samkomulagi við Manchester United um að fá bakvörðinn Phil Bardsley á láni í janúar og þá hefur Roy Keane, stjóri Sunderland, einnig áhuga á að fá liðsfélaga hans Jonny Evanns út timabilið.
Bardsley, sem er 21 árs gamall, var á láni hjá Rangers í vetur en lenti saman við Paul Le Guen, stjóra Rangers. Hann hefur spilað sautján leiki fyrir Manchester United.
Þá sagði Sir Alex Ferguson þetta um Evans sem er á láni hjá Royal Antwerp þessa stundina: ,,Við gætum ákveðið að hafa hann hér en ef hann fer á láni, þá eru Sunderland líklega rétta áskorunin fyrir hann."
Evans spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Norður-Írland í september í 3-2 sigurleik á Spáni og þótti standa sig mjög vel.

Heimild: Sky