Fotbolti.net
23.01.05 - 15:14
Magnús Már Einarsson

Stefán Þór Þórðarson til Norrköping (Staðfest)

Stefán Þór fagnar marki þegar að hann lék með Stoke á sínum tíma.

Stefán Þór fagnar marki þegar að hann lék með Stoke á sínum tíma.

Canon
Sóknarmaðurinn Stefán Þór Þórðarson hefur gert þriggja ára samning við sænska liðið IFK Norrköping en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net í dag. Stefán Þór sem er 29 ára hefur æft með Norrköping síðustu daga og fékk samningstilboð eftir góða frammistöðu á æfingu en Stefán var að leita sér að liði í Svíþjóð þar sem kona hans er á leið í skóla þar í landi.
Stefán skoraði tvö mörk í fimmtán leikjum fyrir ÍA í efstu deild síðastliðið í sumar en hann lék mjög vel og var valinn besti leikmaður liðsins á lokahófi þess. Norrköping þarf ekki að borga krónu fyrir Stefán þar sem samningur hans við Skagamenn rann út um áramótin.

Stefán hefur áður verið í atvinnumennskunni en hann hefur leikið með sænska liðinu Öster, norsku liðunum Brann og Kongsvinger, þýska liðinu Uerdingen og enska liðinu Stoke.

Bróðir hans Þórður Þórðarson markvörður ÍA lék á sínum tíma með Norrköping en þetta sænska lið er núna í næstefstu deild þar í landi og verður Stefán ekki eini Íslendingurinn í liðinu því varnarmaðurinn Guðmundur Mete er einnig á mála hjá því.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.