Fotbolti.net
23.01.06 - 13:28
Magnús Már Einarsson

Bo Henriksen til ÍBV (Staðfest)

Bo Henriksen til ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: ÍBV

Danski framherjinn Bo Henriksen kom hingað til lands um helgina og skrifaði undir samning við ÍBV en hann hafði áður náð samkomulagi um að ganga til liðs við félagið.
Bo mun nú fara til Skotlands eða Englands og æfa með liði þar í landi áður en hann fer með Eyjamönnum í æfingaferð í mars. Eftir það kemur hann svo hingað til lands og tekur þátt í undirbúningnum fyrir sumarið.

Þessi þrítugi leikmaður hefur víða komið við á ferlinum en hann kom til Vals í fyrravor. Hann fékk fá tækifæri hjá liðinu og gekk í kjölfarið til liðs við Fram þar sem hann skoraði meðal annars bæði mörk liðsins í sigri á Val. Hann lék einnig með Frömurum í úrslitum VISA-bikarsins þar sem liðið tapaði 1-0 gegn Val.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.