Fotbolti.net
23.01.06 - 13:33
Magnús Már Einarsson

Ziegler lánaður til Wigan (Staðfest)

Ziegler lánaður til Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wigan hefur fengið Svisslendinginn Reto Ziegler að láni út þetta tímabil frá Tottenham en þess tvítugi örfætti leikmaður sem getur bæði leikið í bakverði og á kantinum var á dögunum kallaður til baka frá Hamburg SV þar sem hann var í láni.
Ziegler mun geta leikið með Wigan gegn Arsenal í síðari leik liðanna í undanúrslitum deildabikarsins á morgun en hann getur þó ekki leikið með félögum sínum þegar að liðið mætir Tottenham í febrúar vegna reglna hjá ensku úrvalsdeildinni.

,,Reto er hátt metinn hjá Spurs og hann mun auka samkeppni í hópinn hér. Hann er sterkur og um 190 cm á hæð með mikinn hraða og hungur og þá hefur hann mikla reynslu þrátt fyrir stuttan feril," sagði Paul Jewell stjóri Wigan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.