Fotbolti.net
23.01.06 - 19:04
Magnús Már Einarsson

Arsenal kaupir Poom (Staðfest)

Arsenal kaupir Poom (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur gengið frá kaupum á Mart Poom markverði Sunderland en hann hefur verið í láni hjá liðinu á leiktíðinni þar sem það er hluti af lánssamningi Justin Hoyte við Sunderland.
Poom sem er 33 ára gamall Eistlendingur hefur raunar ekki leikið neitt með Arsenal en hann er á eftir Jens Lehmann og Manuel Almunia í goggunarröðinni hjá liðinu.

,,Ég er mjög ánægður með að Arsene Wenger og þjálfarliðið hafi sýnt trú á mér. Mér líður vel hér hjá Arsenal og ég mun halda áfram að vinna vel á æfingum svo ég mun vonandi geta spilað í aðalliðinu í framtíðinni," sagði Poom við heimasíðu Arsenal í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.