Fotbolti.net
23.01.06 - 19:18
Magnús Már Einarsson

Ashton til West Ham (Staðfest)

Ashton til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham hefur keypt framherjann Dean Ashton frá Norwich City á sjö milljónir punda en 250 þúsund pund munu bætast við kaupverðið síðar auk þess sem Norwich mun fá 15% af næstu sölu á leikmanninum.
Ashton sem er fyrrum U-21 árs landsliðsmaður kom til Norwich frá Crewe fyrir ári síðan á þrjár milljónir punda og skoraði hann alls átján mörk fyrir fyrrnefnda liðið.

,,Ég er auðvitað mjög glaður að skrifa undir hjá góðum klúbbi eins og West Ham, ég er leiður yfir því að yfirgefa Norwich en þegar að West Ham kom stökk ég á tækifærið og að komast aftur í úrvalsdeildina er frábært," sagði Ashton við Sky Sports eftir að hann skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við Hamrana nú síðdegis.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.