Fotbolti.net
23.01.07 - 11:31
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Fernando Cavenaghi til Bordeaux (Staðfest)

Cavenaghi (til vinstri) í leik með Spartak Moskvu

Cavenaghi (til vinstri) í leik með Spartak Moskvu

Canon

Mynd: Getty Images

Argentíski sóknarmaðurinn Fernando Cavenaghi hefur gengið til liðs við franska félagið Bordeaux frá Spartak Moskvu og skrifaði hann undir fjögurra og hálfs árs samning en þessu greindi rússneska félagið frá í dag.
Þessi 23 ára gamli leikmaður varð dýrasti leikmaður rússnesku deildarinnar þegar hann kom til Spartak í júlí 2004 en náði aldrei að festa sig almennilega í sessi þar á bæ.

Cavenaghi skoraði aðeins níu mörk í öllum keppnum árið 2006 eftir að hafa skorað sjö árið á undan. Hann skoraði hinsvegar 55 mörk í 88 deildarleikjum fyrir River Plate.

Þrátt fyrir að ekki var gefið upp hversu mikið franska félagið borgaði fyrir leikmanninn telja rússneskir fjölmiðar að verðmiðinn sé um 13 milljónir dollara.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.