23.01.08 - 19:51
Hafliði Breiðfjörð
Rade Prica til Sunderland (Staðfest)

Rade Prica.

Mynd: Getty Images

Rade Prica.

Mynd: Getty Images
Roy Keane knattspyrnustjóri Sunderland hefur keypt sinn annan leikmann á tveimur dögum því hann var nú í kvöld að ganga frá 2 milljón punda kaupum á sænska framherjanum Rade Prica sem kemur frá Álaborg í Danmörku.
Keane hafði í gær keypt Phil Bardsley hægri bakvörð frá Manchester United og er því búinn að eyða fjórum milljónum punda í vikunni eftir kaupin Prica.
Prica sem er 27 ára gamall var markahæsti leikmaður dönsku deildarinnar á síðustu leiktíð. Hann hefur skorað tvö mörk í 13 landsleikjum fyrir Svíþjóð. Hann gerir samning við Sunderland til 2011.
,,Rade er reyndur framherji með góða tölfræði í markskorun," sagði Roy Keane stjóri Sunderland í dag. ,,Hann er hungraður í að spila í úrvalsdeildinni og gefur okkur möguleika í framlínunni."
Hann hafði hafið feril sinn hjá Ljungby í heimalandinu en fór þaðan til Helginsborg. Hann lék með Hansa Rostock í Þýskalandi áður en hann fór til Álaborg í júlí 2006 þar sem hann skoraði 28 mörk í 48 leikjum.

Heimild: BBC