Fotbolti.net
23.02.07 - 18:31
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Khalilou Fadiga til Coventry (Staðfest)

Fadiga er kominn til Ian Dowie og félaga

Fadiga er kominn til Ian Dowie og félaga

Canon

Mynd: Getty Images

Ian Dowie hefur fengið til sín sinn fyrsta leikmann til Coventry er hann fékk til sín miðjumanninn Khalilou Fadiga, fyrrum leikmann Bolton og Inter Milan.
Þessi 32 ára gamli Senegali kemur til Coventry á samningi út tímabilið og fer hann beint í liðið fyrir leik gegn Norwich um helgina.

Fadiga hefur verið án félags síðan í sumar þegar hann fór frá Bolton eftir tvö ár þar á bæ. Hann hafði áður verið hjá Paris Saint Germain, Red Star, RFC Liege, Club Brugge, Auxerre og Inter Milan.

Þegar hann var hjá Bolton var hann einnig hjá Derby í einn mánuð í láni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.