Fotbolti.net
23.02.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Sigurður Víðisson í Fjarðabyggð á láni (Staðfest)

Sigurður í æfingaleik með HK á dögunum.

Sigurður í æfingaleik með HK á dögunum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjarðabyggð úr fyrstu deild hefur fengið Sigurð Víðisson á láni frá HK en þetta kemur fram á heimasíðum beggja félaga.
Sigurður er tvítugur miðjumaður en hann er uppalinn HK-ingur. Á síðustu leiktíð var hann á láni hjá Víkingi Ólafsvík þar sem hann skoraði eitt mark í fjórtán leikjum í fyrstu deildinni.

Hann lék var nokkrum sinnum í leikmannahópi HK þegar að liðið komst upp í Landsbankadeildina sumarið 2006.

Um síðustu helgi lék Sigurður æfingaleik með Fjarðabyggð gegn ÍA en á morgun getur hann leikið sinn fyrsta mótsleik með félaginu þegar það mætir Stjörnunni í Lengjubikarnum.

Hjá Fjarðabyggð eru fleiri fyrrum leikmenn HK, Jóhann Ingi Jóhannsson, Ingi Þór Þorsteinsson og Guðmundur Atli Steinþórsson leika allir með liðinu og Magni Fannberg sem þjálfaði á sínum tíma hjá HK þjálfar nú Fjarðabyggð.

Fjarðabyggð endaði í fimmta sæti á sínu fyrsta tímabili í fyrstu deild síðastliðið sumar. Í vetur hefur liðið fengið Guðmund Andra Bjarnason frá Grindavík, Pétur Geir Svavarsson frá BÍ/Bolungarvík og Sveinbjörn Jónasson frá Huginn.

Heimild: Heimasíða HK | Heimasíða Fjarðabyggðar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.