Fotbolti.net
23.02.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Luke Moore til WBA (Staðfest)

Luke Moore til WBA (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hefur fengið Luke Moore framherja Aston Villa á láni út leiktíðina en WBA getur síðan keypt hann í sumar á þrjár milljónir punda.
Það fé getur farið upp í 3,5 milljónir punda en fyrstu 28 dagana af lánssamningnum getur Aston Villa kallað Moore til baka.

Moore sem er 22 ára gamall hefur fallið niður í goggunarröðinni hjá Martin O'Neill knattspyrnustjóra Aston Villa og var orðinn pirraður á að fá lítið að spila.

,,Sem ungur leikmaður mun hann vonandi vera leikmaður fyrir framtíðina," sagði Tony Mowbray stjóri WBA.

Moore stóðst læknisskoðun hjá WBA í gær og getur leikið sinn fyrsta leik með liðinu í dag þegar að liðið mætir Hull.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.