Fotbolti.net
23.02.15 - 08:15
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Samtals sex frá City og Liverpool

Philippe Coutinho skoraði svakalegt mark.

Philippe Coutinho skoraði svakalegt mark.

Canon

Mynd: Getty Images

Það voru læti og fjör um helgina í enska boltanum þar sem forysta Chelsea minnkaði niður í fimm stig. Það er nóg að ræða á kaffistofunum eftir liðna umferð en Garth Crooks hjá BBC hefur valið úrvalsliðið sem sjá má hér að neðan.

Thibaut Courtois stendur í markinu en hann sýndi leiðtogahæfileika í viðtölum eftir jafntefli Chelsea gegn Burnley.


Í þriggja manna vörn úrvalsliðsins má finna Branislav Ivanovic sem leggur sig alltaf 100% fram auk þess að skila mörkum. Liverpool vann 2-0 sigur gegn Southampton þar sem Martin Skrtel og Emre Can voru frábærir.

Manchester City fór illa með Newcastle. Yaya Toure hefur verið sárt saknað hjá City en hann er mættur aftur í vinnuna og vinnan hans snýst um að vinna fótboltaleiki. Hann er á miðjunni rétt eins og Esteban Cambiasso sem átti stóran þátt í því að Leicester fékk stig gegn Everton.

Senegalinn Cheikhou Kouyate sýndi magnaða vinnusemi ásamt því að skora með skalla í 2-2 jafntefli West Ham gegn Tottenham. Philippe Coutinho er fullur sjálfstrausts og er í liðinu eftir stórkostlegt mark fyrir Liverpool gegn Southampton.

Það var unun að fylgjast með David Silva með City gegn Newcastle og þá var Sergio Aguero frábær í framlínunni. Harry Kane er einnig í liðinu eftir að hafa hjálpað Spurs að fá stig gegn West Ham.

Fyrri úrvalslið í enska boltanum
#Kanetrain.

#Kanetrain.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.