Fotbolti.net
23.02.26 - 21:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ægir Jarl búinn að semja við Fram

Ægir Jarl búinn að semja við Fram
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ægir Jarl Jónasson er, samkvæmt heimildum Fótbolta.net, búinn að ná samkomulagi við Fram um að verða leikmaður félagsins. Ægir er leikmaður danska félagsins AB en er með lausan samning í sumar.

Fram hefur áhuga á því að fá Ægi til félagsins áður en Besta deildin byrjar en svo það gangi upp þarf félagið að ná samkomulagi við danska félagið.
Heyrði leigubílasögu úr Úlfarsárdalnum
TENGT EFNI

Heyrði leigubílasögu úr Úlfarsárdalnum

Ægir Jarl verður 28 ára í næsta mánuði. Hann er miðjumaður sem þekkir þjálfara Fram mjög vel. Rúnar Kristinsson fékk Ægi til KR frá Fjölni árið 2019. KR varð Íslandsmeistari á fyrsta ári Ægis í Vesturbænum og unnu hann og Rúnar saman á árunum 2019-23. Hjá KR lék Ægir með fyrirliða Fram, Kennie Chopart.

Ægir lék á sínum tíma 15 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði í þeim eitt mark. Hann fór til AB sumarið 2024 .

AB er á toppi dönsku C-deildarinnar sem stendur og hefur Ægir lagt upp tvö mörk í sextán leikjum á tímabilinu samkvæmt Transfermarkt. Fyrsti leikur liðsins eftir vetrarfrí verður spilaður 7. mars. Fannar Berg Gunnólfsson er þjálfari AB og Adam Ingi Benediktsson er aðalmarkmaður liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.