Fotbolti.net
23.03.15 - 12:30
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Þrír úr Man Utd

Juan Mata er í liðinu.

Juan Mata er í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United á þrjá menn í liði helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni eftir sigurinn á Liverpool í gær.

Manchester City og West Ham eru bæði með tvo fulltrúa að þessu sinni.
Hér er úrvalslið helgarinnar en það er að þessu sinni úr smiðju Garth Crooks hjá BBC.



Julien Speroni sér um markið í þessari viku eftir flotta frammistöðu í útisigri Crystal Palace á Stoke.

Nathaniel Clyne átti enn einu sinni fínan leik þegar Southampton sigraði Burnley.

Chris Smalling var öflugur í vörn Manchester United á Anfield og þeir James Collins og Aaron Cresswell hjálpuðu West Ham að halda hreinu gegn Sunderland.

Juan Mata var maður helgarinnar eftir tvö mörk gegn Liverpool og hann er að sjálfsögðu í liðinu ásamt liðsfélaga sínum Marouane Fellaini sem átti líka góðan leik á Anfield.

David Silva og Wilfried Bony hjá Manchester City eru í liðinu eftir góðan leik gegn WBA og Harry Kane er að sjálfsögðu í liðinu eftir þrennu gegn Leicester. Eden Hazard er síðan síðasti maðurinn í sóknarlínunni en hann skoraði laglegt mark gegn Hull.

Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Harry Kane skoraði þrennu.

Harry Kane skoraði þrennu.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.