Fotbolti.net
23.03.26 - 16:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kristófer Leví í Fylki (Staðfest)

Eftir leik með Fylki tímabilið 2019.

Eftir leik með Fylki tímabilið 2019.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Lengjudeildin
Lengjubikarmeistararnir í Fylki eru búnir að finna markvörð sem mun koma til með að veita Ólafi Kristófer Helgasyni samkeppni í sumar því Kristóer Leví Sigtryggsson (2000) er mættur aftur í Árbæinn.

Kristófer Leví þekkir vel til í Árbænum eftir að hafa verið á mála hjá félaginu á árunum 2019-21.

Hann kemur frá Grindavík þar sem hann lék síðustu tvo leikina í fyrra og hjálpaði liðinu að halda sæti sínu í deildinni.
Flaug frá Danmörku og hjálpaði liðinu að halda sér uppi
TENGT EFNI

Flaug frá Danmörku og hjálpaði liðinu að halda sér uppi

Hann hefur verið í mastersnámi í Kaupmannahöfn en flytur heim í vor. Kristófer er uppalinn hjá Stjörnunni og hefur leikið með Fylki, ÍR, Völsungi, Gróttu, KFG og Grindavík á sínum ferli.

Fylkismenn voru í markmannsleit eftir að Hilmar Þór Kjærnested Helgason yfirgaf félagið fyrr í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.