Viktor Nói Viðarsson er genginn í raðir FH frá Gent í Belgíu og skrifar hann undir tveggja ára samning við Fimleikafélagið.
Viktor, sem er átján ára gamall, er sonur Arnars Þórs Viðarssonar fyrrum landsliðsþjálfara Íslands.
Hann hefur búið alla ævi í Belgíu og hefur hann spilað fyrir yngri landslið Belga þar sem hann var meðal annars fyrirliði. Fyrir rúmu ári síðan valdi hann að spila fyrir Ísland og hefur hann leikið níu leiki fyrir U19 landsliðið.

„Við erum mjög ánægðir með að hafa fengið Viktor Nóa til liðs við okkur. Hann kemur úr góðum skóla í Belgíu, er kominn með þó nokkra reynslu úr fullorðins fótbolta og hefur akkúrat þá eiginleika sem við vorum að leitast eftir.
Hann er með mikla hlaupagetu, rólegur á boltanum og les leikinn vel. Svo skemmir ekki fyrir að hann er með mikið FH hjarta. Við ætlum okkur síðan að hjálpa honum eins og öðrum ungum leikmönnum að bæta sig og gera þá tilbúna í næsta skref á ferlinum,“ er haft eftir Davíð Þór Viðarssyni, yfirmanni fótboltamála hjá FH og frænda Viktors, í tilkynningu FH.
Faðir Arnars og Davíðs, og afi Viktors Nóa, Viðar Halldórsson, er formaður FH. Hann var varnarmaður á sínum ferli og lék með FH og íslenska landsliðinu.
Athugasemdir