Fotbolti.net
23.03.26 - 17:59
Ívan Guðjón Baldursson

Vålerenga kaupir Kolbein (Staðfest)

Vålerenga kaupir Kolbein (Staðfest)
Canon

Mynd: Valerenga

Norska félagið Vålerenga hefur ákveðið að festa kaup á Kolbeini Birgi Finnssyni sem hefur verið að gera góða hluti með liðinu á láni frá Utrecht.
Kolbeinn Birgir hefur verið frábær á undirbúningstímabilinu og virðist strax vera búinn að festa sig í sessi í byrjunarliðinu. Kolbeinn er vinstri bakvörður og hefur spilað allar mínútur Vålerenga á upphafi nýs tímabils.

Liðið hefur farið afar vel af stað og er með tvo sigra úr tveimur fyrstu umferðunum í efstu deild án þess að hafa fengið mark á sig. Kolbeinn hefur verið meðal bestu leikmanna liðsins og gaf hann stoðsendingu í síðustu umferð.

Kolbeinn kom til Valerenga á lánssamningi með kaupmöguleika og er norska félagið þegar búið að semja við Utrecht um varanleg félagaskipti.

Kolbeinn er 26 ára gamall og hefur hrifið þjálfarateymi Vålerenga bæði á æfingum og í leikjum.

„Hann hefur verið frábær frá komu sinni til félagsins og við erum mjög ánægðir með hann. Við vorum ekki lengi að átta okkur á því að við vildum festa kaup á Kolbeini," segir Joacim Jonsson, yfirmaður fótboltamála hjá Vålerenga. „Hann er mikill fagmaður og í hans framkomu kristallast það sem við viljum standa fyrir sem félag."

Kolbeinn gerir þriggja og hálfs árs samning við Vålerenga sem gildir út árið 2029.

„Það er mjög góð tilfinning að vera hérna. Stuðningsmennirnir eru frábærir og ég sé mikla möguleika hjá þessu félagi, bæði vegna stærðar þess og gæða leikmannahópsins."

Vålerenga er sögufrægt félag í norska boltanum en hefur lent í erfiðleikum á síðustu árum. 2023 féll félagið afar óvænt úr efstu deild en komst beint aftur upp og átti gott tímabil sem nýliði í fyrra.

Kolbeinn og Gísli með stoðsendingar - Daníel Leó meiddist
TENGT EFNI

Kolbeinn og Gísli með stoðsendingar - Daníel Leó meiddist



Vålerenga kaupir Kolbein (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.