þri 23. apríl 2019 23:30
Arnar Helgi Magnússon
„Mbappe er stjarna PSG, ekki Neymar"
Mynd: Getty Images
Kylian Mbappe hefur farið á kostum með PSG á leiktíðinni. Hann er kominn með þrjátíu mörk í deildinni í einungis 27 leikjum.

Hann er hin raunverulega stjarna í liði PSG, ekki Neymar. Þetta segir Jean-Pierre Papin, fyrrum landsliðsmaður Frakklands.

„Aðalvopn PSG er Mbappe. Það hefur sýnt sig á leiktíðinni. Umræðan snýst um Neymar, hvar er Neymar? Er hann með? Hvert fer hann? Nú ætti fólk að snúa sér að Mbappe," segir Jean Papin

„Síðustu tvö ár hefur Neymar fengið alla athyglina og Mbappe verið í skugganum."

Eins og fyrr segir er Mbappe búinn að skora þrjátíu mörk í deildinni.

„Munurinn á mér og honum er sá að ég gerði þetta einu sinni en hann á eftir að gera þetta næstu árin. Þetta er mikill fjöldi af mörkum," sagði Papin að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner