23.05.05 - 16:25
Magnús Már Einarsson
Rohan Ricketts semur við Wolves (Staðfest)

Miðjumaðurinn Rohan Ricketts hefur ákveðið að gera tveggja ára samning við 1.deildarlið Wolves og mun hann ganga til liðs við sitt nýja lið þegar að hann losnar frá Tottenham þann 30.júní næstkomandi.
Ricketts sem er 22 ára var í láni hjá Wolves undir lok þessa leiktíðar og hefur hann nú fengið sig lausan frá Tottenham. Hann mun fara frá liðinu í sumar og gera eins og fyrr segir 2 ára samning við Wolves með möguleika á framlengingu.
Glenn Hoddle stjóri Wolves sagði meðal annars ,, Hann er ungur, hefur mikla hæfilega og er einn fyrir framtíðina. Rohan heillaði okkur þegar að hann var í láni hér og þegar að það var opinbert að hann myndi verða á lausu þá vorum við fullir áhuga á því að hefja viðræður um semja við hann."