Fotbolti.net
23.05.06 - 11:38
Hafliði Breiðfjörð

Rosicky til Arsenal (Staðfest)

Rosicky til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tékkneski landsliðsmaðurinn Tomas Rosicky er genginn í raðir Arsenal frá Borussia Dortmund en enska félagið staðfesti nú í morgun að búið væri að ganga frá þessu. Kaupverð hefur ekki verið gefið upp en Rosicky gekk í raðir Dortmund árið 2001.
,,Ég er mjög ánægður með að vera hérna hjá Arsenal, þetta er frábær dagur fyrir mér," sagði Rosicky sem er 25 ára gamall.

Hann hafði verið á óskalista hjá spænska félaginu Atletico Madrid en Arsenal náðu hinsvegar að klófesta hann. Hann spilar með Tékkum á Heimsmeistarmótinu í sumar en til þessa hefur hann leikið 53 landsleiki og skorað í þeim 15 mörk.

Hann kostaði Dortmund 18 milljónir punda er hann var keyptur frá Sparta Prag árið 2001 en það var metupphæð í Bundesligunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.