Fotbolti.net
23.05.07 - 14:31
Magnús Már Einarsson

Rúnar Kristinsson með KR gegn Val á morgun (Staðfest)

Rúnar kvaddur eftir síðasta heimaleik sinn með Lokeren síðastliðinn laugardag.

Rúnar kvaddur eftir síðasta heimaleik sinn með Lokeren síðastliðinn laugardag.

Canon

Mynd: Kristján Bernburg

Miðjumaðurinn reyndi Rúnar Kristinsson hefur fengið leikheimild með KR og verður hann í leikmannahópi liðsins gegn Val í Landsbankadeildinni annað kvöld en þetta staðfesti Teitur Þórðarson þjálfari Fótbolta.net í dag.
Rúnar flýgur til Íslands í dag frá Belgíu þar sem að hann lék sinn síðasta leik með Lokeren síðastliðinn laugardag.

,,Það er engin spurning að hann hefur hluti sem munu færa okkur ýmislegt. Hann er búinn að vera að spila og á að vera í ágætis formi," sagði Teitur Þórðarson þjálfari KR við Fótbolta.net í dag.

Rúnar sem er 37 ára gamall er landsleikjahæsti leikmaður Íslendinga frá upphafi með 104 leiki. Hann hóf feril sinn hjá Leikni en lék með KR í sjö ár áður en hann hélt í atvinnumennsku árið 1995.

Þar lék Rúnar með Örgryte í þrjú ár og síðan með Lilleström áður en hann fór til Lokeren í Belgíu árið 2000 þar sem hann hefur verið lykilmaður undanfarin ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.