Fotbolti.net
23.05.07 - 22:18
Magnús Már Einarsson

Tveir leikmenn frá Króatíu til ÍA (Staðfest)

Guðjón Þórðarson þjálfari ÍA.

Guðjón Þórðarson þjálfari ÍA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tveir leikmenn frá Króatíu eru á leið til ÍA en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í kvöld. Um er að ræða miðvörð og framherja sem hafa leikið í efstu deild í Króatíu í vetur.
,,Þetta eru tveir sterkir leikmenn sem fá mjög góða umsögn," sagði Guðjón Þórðarson við heimasíðu Skagamanna í kvöld.

Leikmennirnir munu fylgjast með leik ÍA og Fram í Landsbankadeildinni annað kvöld og vonast Skagamenn til að þeir verði klárir í slaginn gegn Fylki í fjórðu umferð Landsbankadeildarinnar á mánudaginn.

Á heimasíðu Skagamanna kemur einnig fram að einn leikmaður í viðbót sé síðan væntanlega á leið til félagsins.

Heimild: Heimasíða ÍA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.