23.05.08 - 13:13
Magnús Már Einarsson
Edmilson til Villareal (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Villareal, sem endaði í öðru sæti í spænsku deildinni á þessari leiktíð, hefur samið við brasilíska leikmanninn Edmilson.
Samningur Edmilson við Barcelona er að renna út en hann hefur verið undanfarin fjögur tímabil hjá Börsungum.
Þessi 31 árs gamli leikmaður getur leikið í miðverði og sem varnarsinnaður miðjumaður en á tíma sínum hjá Barcelona varð hann tvívegis spænksur meistari og sigraði Meistaradeildina árið 2006.
Edmilson var áður á mála hjá Lyon þar sem hann vann frönsku deildina þrívegis.

Heimild: AFP