23.06.06 - 11:27
Yngvi Þ. Eysteinsson
Riordan genginn til liðs við Celtic (Staðfest)

Derek Riordan í baráttunni

Mynd: Getty Images

Derek Riordan í baráttunni

Mynd: Getty Images
Derek riordan er genginn til liðs við Glasgow Celtic en þessi 23 ára gamli framherji hefur skrifað undir þriggja ára samning við skosku meistarana með möguleika á því að framlengja hann um eitt ár. Hann verður kynntur sem nýr leikmaður félagsins á blaðamannafundi seinna í dag.
,,Ég er mjög spenntur fyrir því að ganga til liðs við Celtic," sagði Riordan á opinberri vefsíðu félagsins og hélt áfram: ,,Celtic er félag með frábæra sögu, frábæra stuðningsmenn og með mikla hefð í því að vinna til verðlauna og það er allt sem ég vil gera."
Gordon Strachan, knattspyrnustjóri liðsins, sagði: ,,Derek er ungur, hæfileikaríkur fótboltamaður og okkur hlakkar til að vinna með honum. Ég er viss um að hann geti orðið lykilmaður hjá okkur og það verður gaman að sjá hann."
Peter Lawwell, stjórnarformaður Celtic, sagði: ,,Derek er einn af efnilegustu leikmönnum Skotlands og hann er mjög spennandi valkostur. Það var fullt af öðrum liðum sem voru pottþétt til í að tryggja sér hann."