Fotbolti.net
23.06.06 - 15:21
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Ólafur Berry og Skoti til Reynis Sandgerði (Staðfest)

Ólafur Þór Berry

Ólafur Þór Berry

Canon

Mynd: Keflavík.is

Ólafur Þór Berry gekk í dag til liðs við Reynis í Sandgerði frá grönnunum í Keflavík á lánssamningi og mun hann spila með þeim út þetta tímabil í 2. deildinni.
Ólafur, sem er 20 ára gamall, skrifaði fyrr á þessu ári undir nýjan samning við Keflavík til október 2008 en hefur ekki fengið eins mörg tækifæri eins og hann hefði viljað undir stjórn Kristjáns Guðmundssonar.

Hann getur bæði spilað í vörn sem og miðju en hann kom til Keflavík frá ÍBV fyrir síðasta sumar og mun hann án efa vera mikill liðsstyrkur fyrir Reyni sem eru í fyrsta sæti í 2. deildinni.

Þá hafa Reynismenn fengið nítján ára skoskan markvörð að nafni Christopher Mccluskey en hann kemur frá heimalandinu. McCluskey mun berjast við Odd Björnsson um markvarðarstöðuna hjá Reyni en hann hefur staðið á milli stanganna í leikjum liðsins í annarri deildinni til þessa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.